Við erum að tala um það að það
sé komið nýtt ár, það er komið árið 2007. Þetta er ekki smá
fljótt að líða. Við erum að tala um að Siggi bró er að verða 20
ára núna eftir ca. 9 daga. Ég verð 21 árs eftir ca. 2 mánuði.
Við systkinin erum að vera gömul. Þetta er hræðilegt. En ég get
þó sætt mig við það að Jóna mín er alltaf einu ári eldri, svo
hún er að verða 22 ára á þessu ári. Hehe, elska þig gamla

Klukkan er hálf sex að morgni til
og ég er ekki að ná að sofna, sofnaði aðeins áðan en vaknaði við
sms frá bróður mínu, takk Siggi minn
Svo núna eftir að vaknaði
aftur þá hef ég bara ekki getað sofnað og mín sem er að fara að
vinna klukkann 10 og svo á djammið í kvöld með stelpunum. Verð ekki
smá hress í vinnunni eða þannig.
En ég er allgjört nörd, búin að
vera í tölvunni bara og nördast, samt eiginlega ekki. Er búin að
vera að skoða bíla sem eru til sölu. Er búin að finna mér nokkra.
Fékk nefnilega einhverja flugu í hausinn að mér langaði í nýjan
bíl. Búin að eiga minn núna í rúm 2 ár og held að það sé komin tími
til að skipta. En þetta eru allt geiðveikir bílar sem ég er búin að
finna. Siggi alltaf bara já, kauptu þennan, segjir þetta við hvern
einasta bíl sem ég sýni honum, hehe 
Eins og ég sagði við mömmu að ég
væri búin að finna einhverja 3 bíla, hún bara er einn ekki nóg
fyrir þig. Ég er farin að halda ekki. Pæla að kaupa mér bara 7
bíla, einn bíl fyrir hvern dag. Lýst ykkur ekki vel á það ? HeHe

En ég er samt svona að pæla hvað
ég eigi að gera við Sunny-in minn, langar ekki að selja hann. En
langar í nýrri bíl. Sunny-in verður 13 ára gamall á þessu ári og
svoldið mikið keyrður, samt ekki mikið miðað við 13 ára gamlan bíl.
Flottur bíll, að vísu svoldið skítugur eftir að ég var fyrir norðan
og svo er hann á nagladekkjunum og koppum, heavy smart eða þannig,
þarf að laga smá útlitið á honum, en það er samt bara smá dældir á
brettinu og einn ryðblettur sem er í brettinnu. En samt ótrúlega
vel með farin bíl, bæði að innan sem og utan miðað við að hann sé
13 ára gamall 
En ég er svona að pæla hvort ég
eigi að auglýsa hann á live2cruize og checka hvort einhver vilji
kaupa hann eða láta Sigga fá hann og láta hann taka við láninnu
mína, sem er sama sem ekki neitt. En þetta er allt í pælingu ennþá.
Samt ef ég þekki mig og Sigga rétt þá verð ég komin á nýjan bíl
innan við 2 vikur. Erum aldrei lengi að þessu.
En jæja, þetta er komið nóg í
bili. Skora nú á Jónu að fara að blogga eitthvað. Hún er ekki að
standa sig. Núna ætla ég út að reykja, setja svo mynd í
dvd-spilarann og checka hvort ég nái ekki að sofna yfir henni
fljótlega svo ég nái smá svefni áður en ég fer að vinna.
Kveðja Heiðbrá 